Áfram FH

Hressir gæjar í FH

01.03.2007 11:42:49 / Þjálfari

Ný síða

Nú munum við þjálfarar hætta að setja inn upplýsingar á þessa síðu.

Nýja síðan okkar er á heimasíðu fh - www.fh.is

Til þess að komast beint inn á heimasíðu flokksins þar farið þið á www.fh.is/5flokkurkarla

kveðja,

þjálfarar


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 23:11:51 / Þjálfari

Æfingar um helgina

Sælir strákar.....og foreldrar

Helgin er spennandi. Á föstudag er æfing frá 15-17 á hefðbundnum tíma. Eldra árið fyrri tímann og yngra árið þann seinni.

Laugardagurinn verður með breyttu sniði en það er vegna þess að við ætlum að gefa öllum kost á að sjá Liverpool rúlla yfir manutd. Yngra árið æfir því klukkan 10.30-11.30 á gervigrasinu á Kaplakrika. Eldra árið æfir svo frá 11.30-12.30.

Á sunnudaginn eru svo leikir gegn Aftureldingu. Við munum stilla upp 6 liðum gegn 6 liðum Aftureldingar og verður tilkynnt á laugardag hvenær þið eigið að mæta. Nú er bara að mæta því það er forsenda þess að fá að spila :)

Kv,

Atli, Davíð Örvar og Jón Páll


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 23:52:48 / Þjálfari

Æfingar um helgina.

Æfingin á morgun er á hefðbundnum tíma frá 12-14 :)

Á sunnudaginn æfum við svo allir saman á Ásvöllum frá 11-12.

kv,

þjálfarar


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 22:43:16 / Þjálfari

Stjarnan - FH á fimmtudag :)

Sælir strákar.

Á fimmtudag keppum við á móti stjörnunni á gervigrasinu þeirra. Munið að við breytum liðunum alltaf örlítið milli leikja. Þannig að ef þið eruð pínu ósáttir þá er bara um að gera að halda áfram að leggja sig fram og gera sitt besta. Það er pínu erfitt að velja í 7 lið !!

Aðalmálið er auðvitað að fá að spila og spila mikið og núna erum við að spila roslega mikið :)

Þessi lið eiga að mæta klukkan 15.40 á stjörnuvöll. Þessi lið eru svo búin að spila klukkan 16.50:

Lið 1 Lið 2 Lið 3
Halldór Kristófer Arnar Ingi
Jón Már Oliver Örn Geir
Anton Ingi Brynjar Örn Benedikt
Flóki Þorgeir Daníel
Böddi Sigurður Þór Th Sigfinnur
Siggi Úlfar Benedikt Herbert
Ingvar Ellert Jósef
Gulli Tindur Eyþór
Dagur Lár Anton Gunnar Dagur Sig
    Sævar
    Alex
    Gabríel


Þessi lið eiga að mæta klukkan 16.20 og eru búin að spila 17.30:

Lið 1 Lið 2
Kristján Birkir Bj
Guðmundur Orri Arnar Ingi
Hlynur Smári Atli Fjölnis
Sindri Kristófer Óttar
Starri Arnar Helgi
Arnar Steinn Bjartur Ari
Jón Ágúst Máni
Tómas Geir Birgir Þór
Stefán Alexander
Anton Freyr Gunnar Ari
Goði  Sólon


Þessi lið eiga að mæta klukkan 17.10 og eru búin að spila klukkan 18.10

 

Lið 1 Lið 2
Þorlákur Gísli Freyr
Sigurður Þór Leifur Örn
Birkir Fannar Hans
Ágúst Daníel Guðmundur
Bjarki Freyr Andrés
Arnar Freyr Tómas
Erlingur Dagur Arnarsson
Hrafn Hilmar
Jóhannes Benedikt A
Jón Bjarni Viktor Carl
Gunnar Davíð Sigurður Rósant


 Ef það vantar einhver nöfn (sem er mjög líklegt!!) þá endilega látið okkur vita hér í commentkerfinu.

Strákar, látið líka vita hér að neða hvort þið komist eða hvort þið komist ekki :)

kveðja,

þjálfarar


» 22 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 21:54:53 / Þjálfari

Æfing á morgun - leikur í dag

Þó að leikirnar í dag á Ásvöllum hafi tapast strákar þá stóðuð þið ykkur vel. Það var alveg vitað að leikirnir yrðu erfiðir fyrir ykkur enda hinir strákarnir 1-3 árum eldri en þið. Þetta var klárlega erfiðasta lið sem þið getið spilað við á þessu tímabili.

Þegar þessir strákar voru í 5 flokki þá voru þeir svipað góðir og þið. Þannig að þið sjáið að ef þið verðið duglegir að æfa og leggja ykkur fram þá eigið þið eftir að bæta ykkur og hægt og rólega og verða mjög góðir :)

Verið því duglegir að mæta á æfingar og æfa ykkur utan æfinga.

Næsta æfing er á morgun :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 20:38:11 / Þjálfari

Morgundagurinn

Æfingin á morgun verður klukkan 13.15-14.15 á gervigrasinu á Kaplakrika.

En þeir sem við töluðum sérstaklega við eiga að spila á ásvöllum og mæta klukkan 10.00.

 kveðja,

þjálfarar


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 15:17:11 / Þjálfari

Æfingin í dag

Sælir strákar.

 Takið með ykkur bæði fótboltaskó og strigaskó á æfinguna í dag.

 kveðja,

þjálfarar


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 17:38:05 / Þjálfari

KR-FH og FH-ÍR

Á morgun spilar eldra árið við KR í Frostaskjólinu. Allir að mæta klukkan 13.40 á gervigrasvöllinn sem er á KR svæðinu. Spilað er úti. Mæta með húfu og vettlinga. Spilað verður frá 14-16 :)

 Yngra árið er í fríi á laugardag.

Yngra árið spilar svo á sunnudag við ÍR á Ásvöllum. Mæting klukkan 10.40 á Ásvelli. Spilað til 12.00.

Frí hjá eldra ári á sunnudag.

 kv,

þjálfarar


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 22:53:54 / Þjálfari

Handbolti - pizza - vonandi sigur :)

Ísland og Danir leika á morgun klukkan 19.00 í handboltanum. Við ætlum að hittast og horfa á leikinn í kapla og fá okkur pizzu í hálfleik.

Mætum 18.45 strákar og takið með ykkur 500 krónur fyrir pizzu. Foreldrar mega koma ef þeir lofa að haga sér vel yfir leiknum og hjálpa til við að útdeila pizzunum í hálfleik :)

kveðja,

þjálfarar


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 10:34:17 / Þjálfari

æfing í dag

gervigrasið er í góðum gír og eftir margra vikna gönguskíðaæfingar þar er nú loksins hægt að fara æfa fótbolta þar :)

kveðja,

þjálfarar :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 17:35:29 / Þjálfari

helgin

Það verður æfing á morgun klukkan 12-14 eins og vaninn er.

Á sunnudag æfir eldra ár frá 12-13 á Ásvöllum

Yngra árið auk nokkura stráka á eldra ári spila svo æfingaleik við BÍ á sunnudag frá 11-12. Það er mætin í síðasta lagi 10.40. Verður þetta fyrsti æfingaleikur flokksins af mörgum næstu vikurnar :) Meira um það í næstu viku

Svo minnum við á foreldrafund á mánudagskvöld klukkan 20.00 í Kapla.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 15:00:18 / Þjálfari

Netfangalisti

Allir foreldar í 5.fl.kk eiga að hafa fengið tölvupóst nú rétt í þessu. Ef einhver varð útundan vinsamlegast sendið mér póst á jonpp05@ru.is

kv,

Jón Páll


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 08:58:10 / Þjálfari

Æfingin í dag

Sælir strákar.

Það verður æfing í dag. Það er þó ekki víst hvort hún verði á gervigrasinu. Takið með ykkur fótboltaskó og strigaskó og mætið í Kaplakrikahúsið.

Munið svo að klæða ykkur og menn - húfa og vettlingar eru nauðsyn þessa dagana alltaf þegar þið farið út og nánast þegar þið eruð inni líka!

Sjáumst í dag.

kv,

þjálfarar


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 13:33:24 / Þjálfari

Breyting á laugardagsæfingu og foreldrafundur.

Sæl verið þið drengir og foreldrar.

Það verður smávægileg breyting á æfingatímanum okkar á morgun. Yngra árið verður frá 12.00-13.00 og eldra árið verður frá 16-17. Báðar æfingar að sjálfsögðu í Risanum.


Á sunnudag er svo æfing á Ásvöllum. Yngra árið frá 11-12 og eldra árið frá 12-13. Athugið þó að ef annar tíminn hentar betur en hinn þá endilega sendið strákinn á þann tíma. Þetta á við alla æfingadagana okkar.


Annan mánudag, þann 29 janúar, verður haldinn foreldrafundur í Kaplasal klukkan 20.00. Fundarefni er starfið næstu vikur og mánuði, kynning á foreldraráði og fleira.

kv,

þjálfarar


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 09:38:44 / Þjálfari

Æfingin í dag

Það verður æfing í dag á auglýstum tíma. Við verðum bæði á hlaupabrautinni og líka í tengibyggingunni í Kaplakriki. Það sem þið þurfið er að vera vel klæddir og vera með húfu og vettlinga. Þið þurfið ekki að koma með fótboltaskó heldur er betra að koma í strigaskóm. kv, þjálfarar

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Fótboltasíður
Leikir í íslandsmóti